Meira fé til stofnana ekki minna!

Ríkistjórnir útum allan heim eru að dæla peningum inní hagkerfið hjá sér og gera hvað þeir geta til að vernda störf. Þessu var okkur lofað í upphafi erfileikanna, að ríkistjórnin mundi standa vörð um heimilin og fyrirtækin í landinu. Þessi samdráttur kemur því þvert á það loforð því það er augljost að störf munu fjúka i tugum og jafnvel hundruðum talið í hverju raðuneiti. Ég mundi vilja sjá stórann hluta af þeim peningum sem við höfum fengið að láni sem innspíting í hagkerfið. Það má gera það með þeim hætti að draga ekki saman hjá ríkistofnunum heldur þvert á móti auka umsvif. Hætta svo sem fyrst að reina að bjarga handónýttri krónu sem hefur ekkert nema tilfinningalegt gildi og taka upp evru. Ef gamli tryggi fjölskylduhundurinn bítur mann jafnvel bara einu sinni þá svæfir maður hann.
mbl.is Heilbrigðisstofnanir í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Obi Wan Kenobi

Það er ekki nóg að spýta inn krónum - það hefur góðærið sannað svo ekki verður um villst. Það þarf að nýta peningana skynsamlega. Það hefur ekki verið gert í heilbrigðisgeiranum, þvert á móti. Leitun er að óskynsamlegri notkun á fjármunum. M.a. hefur einkarekstur í heilbrigðiskerfinu verið sárlega vannýttur sem möguleiki og tortryggður út í hið óendanlega. Það sem núverandi stjórnandi Landspítala stendur frammi fyrir m.a. er að koma út af yfirfylltum spítalanum allskyns verkum sem er miklu ódýrara og skynsamlegra að gera úti í bæ. Einnig þarf að skera upp (bókstaflega) launakerfi hjúkrunarfræðinga m.a., þar sem viðgengist hefur að hjúkrunarfræðingar geti verið í 80% starfi og fengið starf á sömu stofnun á yfirvinnukaupi. Jafnframt hafa laun ýmissa verið hækkuð með því að útvega þeim deildarstjórastöður og svo lengi má telja.

Obi Wan Kenobi, 13.12.2008 kl. 12:48

2 Smámynd: Gummi Kalli

Takk fyrir goða athugasemd Master Jedi. Ég tek undir þetta, það nægir ekki að spýta inn krónunum það þarf að gera það á skynsaman hátt. Og með það að markmiði að styrkja stoðum undir atvinnulíf í og í kringum þessar mikilvægu stofnanir. Aðal punktur minn í þessari skoðun minni er að það má ekki draga of hratt og of mikið saman og peningana á ekki eingöngu að nýta í að vera sem borð undir ónýtta krónu. Útfærsluatriðin þurfa svo að fara í hendur sérfræðinga á hverju sviði en ekki skilja eftir í lausu lofti líkt og allt annað sem ríkistjórnin ákveður að gera.

Gummi Kalli, 13.12.2008 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband