iPad 2 dýrastur á Íslandi (surprise surprise!)

Sjá töflu sem fylgir grein:

http://www.setteb.it/i-prezzi-internazionali-dellipad-2-in-oceania-costa-meno-10815

  Verðsamanburður


mbl.is iPad 2-spjaldtölvan afhjúpuð í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot við lögum varðar refsingu

Það er mjög áhugaverð 17gr. lagana

"17. gr. Brot á VI. kafla laga þessara varða sektum nema þyngri refsing liggi við broti samkvæmt öðrum lögum."

þar sem VI kafli er sá kafli sem fjallar sérstaklega um það að

"Heimilt er að verðtryggja sparifé og lánsfé skv. 13. gr. sé grundvöllur verðtryggingarinnar vísitala neysluverðs sem Hagstofa Íslands reiknar".

 Í dómi hæstaréttar er tekið fram að ágreiningurinn sé:

"Ágreiningur aðilanna snýst um það hvort heimilt hafi verið að binda fjárhæðir í íslenskum krónum í samningi þeirra frá 5. maí 2007 við gengi erlendra gjaldmiðla á þann hátt, sem áður var lýst. Áfrýjandi ber aðallega fyrir sig að ákvæði um þetta í samningnum séu andstæð heimildum í 13. gr. og 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu til að verðtryggja lánsfé og af þeim sökum ógild."

[...]

Og eftirfarandi tekið fram í dómsúrskurði:

". Lög nr. 38/2001 heimila ekki að lán í íslenskum krónum séu verðtryggð með því að binda þau við gengi erlendra gjaldmiðla. Reglur 13. og 14. gr. laga nr. 38/2001 eru ófrávíkjanlegar, sbr. 2. gr. laganna, og verður því ekki samið um grundvöll verðtryggingar, sem ekki er stoð fyrir í lögum."

 Ég er ekki lögfræðingur, en ég túlka þetta sem svo að samningarnir hafi verið brot á 13 og 14gr laga 38/2001 og að brotið varði sektum.

Annars gæti vel verið að ég sé að mistúlka þessi lög eitthvað og meiga því lögfróðari menn en ég benda mér á ef svo er :)


mbl.is Miða við lægstu vexti á hverjum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það líður ekki sú vika þar sem það skelfur ekki jörðin þarna.

Ef maður skoðar viku fyrir viku hér:

http://hraun.vedur.is/ja/viku/2003/vika_21/index.html#mark

 Þá sést að það líður ekki vika án þess að jörðin hristist eitthvað þarna. Það er líka flott að sjá að það eru stöðugir skjálftar í Eyjafjallajökli líka og hafa verið lengi.

3 er í stærri kanntinn jú en ekki sjaldgæft.

Er það ekki bara þannig að flekarnir mætast í þessari línu sem mætti draga frá Grímsey og suður til Eyjafjallajökuls. Það er akkúrat þar sem flekar mætast, þar sem skjálftavirkni er mest, og þar sem eldgos eru líklegust. Það eru mjög flottar skýringar á jarðskjalftum, eldgosum og afhverju þetta er svona á vefsíðu BBC: http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/7533964.stm


mbl.is Jörð skelfur norður af Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vakti sú ákvörðun mikla reiði meðal almennings."

Þetta er látið hljóma eins og það hafi ekki átt að refsa strákunum fyrir gjörðir sínar og að það hafi vakið reiði meðal almennings að það hafi verið gert. Hinnsvegar tel ég að það hafi frekar verið þannig að almenningur hafi reiðst því að þeim hafi ekki verið refsað nægjanlega. Ég fletti þessu upp á vef glæpamannana google því ég vildi fullvissu um að þeim hafi verið refsað almennilega:

"Using the footage and with the co-operation of Google, police were able to identify the four bullies in the video, who were sentenced to community service in a juvenile court."

Ég vona svo bara að þessi samfélagsþjónusta hafi verið löng og erfið.


mbl.is Dæmdir fyrir brot á friðhelgi einkalífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þeir ekki bara svo crap í rúmminu?

Þeir hljóta að vera hrikalega lélegir í rúmminu þessir vísindamenn ef þeir finna ekki einu sinni g-blettinn með vísindalegum aðferðum. Ég held þeir hefðu átt að halda niðurstöðunni útaf fyrir sig.
mbl.is G-bletturinn finnst ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki nema 17.166.666,666 krónur á mann.

Ef ég skrifa 5150 milljarði rétt 5.150.000.000.000 og deili með 300.000 einstaklingum þá fæ ég út símanúmerið anskotanum sjálfum. Ætli það sé tilviljun?

 Ég og mín fjögra manna fjölskylda ætlum bara að borga stax takk. Taki þið gúmmítékka uppá 68.666.666 krónur?


mbl.is Skuldum 5150 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er þessi búinn að vera?

Það er eins og hann sé ný mættur á svæðið! "HÆ ég er kominn aftur af ferð minni í óbyggðirnar! Hef ég misst af einhverju...? HEY HVAÐA!".

En ég get þó verið sammála honum af örlitlu leiti. Á meðan ný ríkistjórn reinir að mæta kröfum almennings um bráðnauðsinlegar "hreinsanir" þá þarf Samfylking að líta um leið í eigin barm og bera ábyrgð líka! Hreinsa aðeins til. Það er ekki nóg að einn ráðherra segi af sér 5 mínútum fyrir stjórnarslit. Það er grátlega augljóst að það var bara gert sem einhverskonar show.


mbl.is Pólitískar hreinsanir og ofsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki í forgangi.

Þetta er ekki eitt af því sem á að vera í forgang á meðan þessi ríkistjórn, sem mun sita í 80 daga á að vera að taka á. Steingrímur ætlar þar að auki að að taka eitt skref afturábak í atvinnumálum, við skulum vona að þau verði ekki mörg. Fyrrum sjávarútvegsráðherra fór of geyst í hlutina og tók meiriháttar ákvörðun sem hann átti ekki að vera að gera 5 mínútum áður en hann steig niður sem ráðherra, en það á núverandi ráðherra ekki að vera að gera heldur.
mbl.is Skoðar ákvörðun um hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forstjóri Óskast.

Fjármálaeftirlitið leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstakling í stöðu forstjóra.

Áskilið er að umsækjendur hafi a.m.k meistarapróf í hagfræði, verkfræði og/eða viðskiptafræði.  

Umsækjandi þarf að vera tilbúin til að taka miklu skítkasti úr öllum áttum, sætta sig við algerlega óviðunandi og ósamkeppnishæf laun, sérstaklega miðað við það starf sem framundan er og má ekki eiga svo mikið sem fjarskildan frænda sem hefur átt hlutabréf eða setið í stjórn félags eða séð um bókhald hjá fjármálastofnun eða... ja hels má enginn ættingi hafa unnið fyrir nokkuð fyrirtæki á Íslandi.

Helstu verk Forstjóra eru ókunn sem stendur þar sem fjármálaeftirlitið hefur aldrei gert neitt.


Meira fé til stofnana ekki minna!

Ríkistjórnir útum allan heim eru að dæla peningum inní hagkerfið hjá sér og gera hvað þeir geta til að vernda störf. Þessu var okkur lofað í upphafi erfileikanna, að ríkistjórnin mundi standa vörð um heimilin og fyrirtækin í landinu. Þessi samdráttur kemur því þvert á það loforð því það er augljost að störf munu fjúka i tugum og jafnvel hundruðum talið í hverju raðuneiti. Ég mundi vilja sjá stórann hluta af þeim peningum sem við höfum fengið að láni sem innspíting í hagkerfið. Það má gera það með þeim hætti að draga ekki saman hjá ríkistofnunum heldur þvert á móti auka umsvif. Hætta svo sem fyrst að reina að bjarga handónýttri krónu sem hefur ekkert nema tilfinningalegt gildi og taka upp evru. Ef gamli tryggi fjölskylduhundurinn bítur mann jafnvel bara einu sinni þá svæfir maður hann.
mbl.is Heilbrigðisstofnanir í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband